Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Árni Gísli Magnússon skrifar 2. nóvember 2025 18:15 Orri Freyr átti atvik leiksins. Vísir/Diego Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Þýskaland í vináttulandsleik þjóðanna ytra í dag þar sem lokatölur urðu 29-31 en liðin mættust einnig á fimmtudaginn var og beið þá íslenska liðið afhroð. Það var því allt annað að sjá íslenska liðið í dag sem sýndi góðan leik sem þarf svo sannarlega til svo að sigur sækir gegn eins sterkri þjóð á þeirra eigin heimavelli.Leikirnir eru liður í undirbúningi liðanna fyrir Evrópumótið sem fram fer í janúar. Þýska liðið byrjaði af krafti og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins áður en Elvar Örn Jónsson kom Íslandi á blað. Þjóðverjar spiluðu hraðan bolta í upphafi leiks sem íslenska liðið átti fá svör við og staðan 5-2 fyrir heimamönnum eftir tæpar tíu mínútur en þá hrökk íslenska liðið í gang og skoraði næstu þrjú mörk og staðan skyndilega 6-5 Íslandi í vil. Liðin skiptust á að skora þar til um átta mínútur voru eftir af hálfleiknum en þá kom góður kafli hjá Íslandi sem komst fjórum mörkum yfir, 16-12. Björgvin Páll Gústafsson var góður á milli stanganna og varði sjö skot í hálfleiknum en það gerði David Späth sömuleiðis í marki heimamanna. Óðinn Þór var að nýta hraðaupphlaupin vel sem fylgdu í kjölfarið og skoraði úr þremur slíkum. Þjóðverjar bitu frá sér undir lok hálfleiksins og leiddi Ísland því aðeins með einu marki í hálfleik, 15-16. Síðari hálfleikurinn fór af stað með hvelli og rigndi mörkunum inn til skiptis fyrstu mínúturnar. Jafnræði var með liðunum allan hálfleikin en íslenska liðið passaði sig á því að hleypa heimamönnum aldrei í bílstjórasætið þrátt fyrir að þeir hafi náð að jafna leikinn margoft. Viktor Gísli kom stóð vaktina í markinu í síðari hálfleik og stóð sig með prýði líkt og Björgvin Páll í fyrri hálfleik og munar um minna.Þá var varnarleikurinn heilt yfir að standa ágætlega og flott flæði í sóknarleiknum sem skilaði mörkum úr öllum áttum. Lokamínúturnar væri æsispennandi en Þjóðverjar minnkuðu muninn í eitt mark þegar um 15 sekúndur voru eftir en strákarnir okkar gerðu engin mistök í lokasókninni og kórónaði Óðinn Þór Ríkharðsson frábæran leik sinn og Íslands með lokamarki leiksins og tryggði Íslandi tveggja marka sigur. Lokatölur 29-31. Atvik leiksins Orri Freyr Þorkelsson skoraði frábært sirkus mark í fyrri hálfleik þegar hann sveif inn teiginn og greip boltann eftir sendingu frá Óðni Þór í hinu horninu og kom boltanum í netið. Skemmtilegt mark. Stjörnur og skúrkar Það vita það allir sem hafa séð Óðinn Þór Ríkharðsson spila handbolta að þarna er á ferðinni einhver mesti markaskorari sem sögur fara af og bráðskemmtilegt að fylgjast með honum. Hann skoraði átta mörk úr átta skotum í dag og var frábær. Gísli Þorgeir Kristjánsson er heilinn í sóknarleik liðsins, skoraði fimm mörk og skapaði helling af færum fyrir liðsfélaga sína. Markavarslan var góð í dag, sem var algjör lykilatriði til að sækja sigurinn þar sem markvarslan var lítil sem engin í fyrri leiknum.Björgvin Páll stóð vaktina í fyrri hálfleik og varði sjö skot, sem gerir 32% markvörslu.Viktor Gísli Hallgrímsson tók svo síðari hálfleik og varði sex skot, sem gerir 30% markvörslu.Varnarleikurinn var einnig nokkuð góður stóran hluta leiksins en það er erfitt að spila góða vörn í 60 mínútur gegn þessu kraftmikla þýska liði. Hjá Þjóðverjum var Marko Grgic illviðráðanlegur og skoraði sex mörk úr níu skotum.Tim Freihöfer og Julian Köster komu þar á eftir með fimm mörk hvor. David Späth fór hamförum í fyrri hálfleik í markinu en hægði á sér í þeim seinni og endaði með ellefu varða bolta sem gerir 27% markvörslu. Juri Knorr, ein skærasta stjarna liðsins, náði sér ekki á strik og skoraði aðeins eitt mark úr fimm tilraunum. Dómarar Þeir stóðu sig vel í dag og voru með lang flesta dóma rétta en létu plata sig í tvígang með smá leikaraskap hjá þeim þýsku. Umgjörð og stemning Þjóðverjar kunna svo sannarlega að búa til flotta umgjörð í kringum íþróttaviðburði og var þessi vináttulandsleikur engin undantekning. Liðin voru kynnt inn með látum ásamt ljósa sýningu og hvaðeina. Þá heyrðist vel í þýskum stuðningsmönnum á pöllunum. Landslið karla í fótbolta