Formúla 1

Alonso: Mikilvægt að komast á verðlaunapallinn

Fernando Alonso á fundi með fréttamönnum Í Valencia í dag.
Fernando Alonso á fundi með fréttamönnum Í Valencia í dag. AP mynd: Alberto Saiz
Tveir Formúlu 1 ökumenn verða á heimavelli á Valencia brautinni á Spáni um helgina. Fernando Alonso hjá Ferrari og Jamie Alguersuari hjá Torro Rosso. Alonso er meðal þeirra fimm efstu í stigamóti ökumanna í ár.

Alonso skrifaði undir samning við Ferrari í Valencia á sínum tíma og hann ók í fyrsta skipti með liðinu á sérstökum Ferrari degi á braut í grennd við borgina. Þá hafði hann áður tekið sprett í Valencia borginni með McLaren árið 2007 og ók hann með liði frá Valencia í annarri mótaröð eitt sinn að eigin sögn. Hann hefur því ýmsar minningar frá borginni.

En Alonso hefur aldrei komist á verðlaunapall í Formúlu 1 mótinu í Valencia, en besti árangur hans er sjötta sæti árið 2009. Alonso var spurður að því á fréttamannafundi í Valencia í dag hvort hann ætti inni góðan árangur á brautinni.

„Nei. Vitanlega verður maður að vera samkeppnisfær og lánsamur þegar öryggisbíllinn kemur út. Maður þarf að vera á réttum stað á réttum tíma", sagði Alonso og sagði að sama staða hefði verið í síðustu keppni sem var í Kanada. Varð að stöðva keppnina vegna mikillar rigningar um tíma. Alonso telur sig hafa verið óheppinn í fyrra í Valencia í tengslum við útkomu öryggisbílsins í mótinu, en óhpp eru algeng á götubrautum sem krefst útkomu öryggisbílsins.

„Vonandi getum við verið samkeppnisfærir í ár. Það er mikilvægast af öllu og það er mikilvægt fyrir okkur að komast á verðlaunapallinn hérna í Valencia. Mig líka. Vonandi getum við skemmt áhorfendum á sunnudag", sagði Alonso og gat þess að mótshaldarar og fleiri hefðu lagt áherslu á að fá fleiri áhorfendur á mótið þess mótshelgina en áður.

Alonso var spurður af því á fréttamannafundinum hvort hann ætti möguleika á sigri.

„Það er erfitt að vinna mót í augnablikinu. Það er ekki nokkur vafi á því að við áttum möguleika á sigri í Mónakó og Kanada. Það er staðreynd. Ekki draumsýn. Við vorum mjög nálægt sigri", sagði Alonso sem var annar á ráslínu í Kanada, en féll úr leik eftir samstuð við Jenson Button, sem vann mótið.

„Við vorum 10 sentimetrum frá því að vinna í Mónakó, náðum öðru sæti, þannig að í tveimur síðustu mótunum hefur gengið vel. Við virðumst samkeppnisfærari. Eiginleikar Valencia brautarinnar eru svipaðir og í Kanada og Mónakó, þannig að kannski er annað tækfæri hérna, en því má ekki gleyma að stundum erum við sekúndu á eftir í tímatökum og ef svo er þá er erfitt að sigra", sagði Alonso.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×