Atvinnulíf

Atvinnulíf

Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.

Fréttamynd

„Ég er bara lög­fræðingurinn sem dró stutta stráið“

„Mér fannst guðfræði mest spennandi háskólafagið því hún sameinar fög eins og sagnfræði, sálfræði og heimspeki,“ segir Jónas Margeir Ingólfsson, handritahöfundur, kvikmyndagerðarmaður, framkvæmdastjóri, eiginmaður, faðir, næstum því hestamaður og lögfræðingur.

Atvinnulíf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Eins og Steve Jobs hafi verslað í fata­skápinn hans

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Mælir með eist­nesku poppi til að vekja börnin al­menni­lega

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari

Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið

Við erum orðin nokkuð vel upplýst um ADHD í dag. Notum ADHD jafnvel sem orð til að vísa í að við séum utan við okkur eða ofvirk. Þekkjum greiningarnar og vitum að sem betur fer er það algengara í dag en áður að fólk fái lyf, ef það kýs, í kjölfar greiningar. Jafnvel á fullorðinsaldri.

Atvinnulíf
Fréttamynd

„Mér er drull um vinnu­stað sem er drull um mig“

„Ástæðan fyrir því að við viljum vekja máls á þessum sjónarmiðum er sú orðræða og fyrirsagnarnotkun sem við höfum verið að sjá undanfarið þessum málum tengt,“ segir Helena Jónsdóttir sálfræðingur og einn eigenda Mental ráðgjafar.

Atvinnulíf