Formúla 1

Vettel fremstur á ráslínu í tólfta skipti á árinu

Sebastian Vettel í tímatökunni á Suzuka brautinni í nótt, þar sem hann náði besta tíma.
Sebastian Vettel í tímatökunni á Suzuka brautinni í nótt, þar sem hann náði besta tíma. AP MYND: GREG BAKER
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð aðeins 0.009 úr sekúndu á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur og Felipe Massa á Ferrari á eftir honum.

Hamilton var með besta tíma í fyrri tilraun nokkurra ökumanna til að ná besta tíma í þriðju umferð tímatökunnar, sem er jafnframt lokaumferðin.

Nokkrir keppinauta Hamilton gerðu eftir þetta tilraun til að ná betri tíma en Hamilton og fóru annan tímatökuhring eftir lítisháttar undirbúning og Vettel og Button tókst að bæta tíma hans. En Hamilton náði ekki að bæta tíma sinn.

Í frétt á autosport.com segir að Hamilton hafi farið heldur of seint af stað í aðra tilraun sína í lokaumferðinni og auk þess hafi hann tafist fyrir aftan Mark Webber á Red Bull og Michael Schumacher á Mercedes, þegar hann var leið á svæðið þar sem tímatakan hefst.

Náði Hamilton ekki þangað í tæka tíð og missti því af tækifæri til að bæta tíma sinn, sem Schumacher gerði reyndar líka. Tími Schumacher í annarri umferð tímatökunnar gildir því hvað uppröðun á ráslínu varðar og sama má segja um Bruno Senna á Renault, Vitaly Petrov á Renault og Kamui Kobayashi á Sauber.

Vettel getur tryggt sér heimsmeistaratitil ökumanna í mótinu á Suzuka brautinni, ef hann nær í eitt stig, en aðeins Button á McLaren getur skákað honum. Button þarf að vinna fimm síðustu mót ársins til að geta unnið titilinn, en á sama tíma má Vettel ekki fá stig, eigi það að ganga eftir. Ef Button vinnur ekki mótið á Suzuka brautinni verður Vettel meistari og þarf ekki fleiri stig í næstu mótum.

Tímarnir í dag

 1.  Sebastian Vettel      Red Bull-Renault     1m30.466s

 2.  Jenson Button         McLaren-Mercedes     1m30.475s   + 0.009

 3.  Lewis Hamilton        McLaren-Mercedes     1m30.617s   + 0.151

 4.  Felipe Massa          Ferrari              1m30.804s   + 0.338

 5.  Fernando Alonso       Ferrari              1m30.886s   + 0.420

 6.  Mark Webber           Red Bull-Renault     1m31.156s   + 0.690

 7.  Michael Schumacher    Mercedes             engin tími í lokaumferðinni

 8.  Bruno Senna           Renault              engin tími í lokaumferðinni

 9.  Vitaly Petrov         Renault              engin tími í lokaumferðinni

10.  Kamui Kobayashi       Sauber-Ferrari       engin tími í lokaumferðinni

11.  Adrian Sutil          Force India-Mercedes 1m32.463s   + 1.997

12.  Paul di Resta         Force India-Mercedes 1m32.746s   + 2.280

13.  Rubens Barrichello    Williams-Cosworth    1m33.079s   + 2.613

14.  Pastor Maldonado      Williams-Cosworth    1m33.224s   + 2.758

15.  Sebastien Buemi       Toro Rosso-Ferrari   1m33.227s   + 2.761

16.  Jaime Alguersuari     Toro Rosso-Ferrari   1m33.427s   + 2.961

17.  Sergio Perez          Sauber-Ferrari       engin tími í annarri umferð

18.  Heikki Kovalainen     Lotus-Renault        1m35.454s   + 2.828

19.  Jarno Trulli          Lotus-Renault        1m35.514s   + 2.888

20.  Jerome D'Ambrosio     Virgin-Cosworth      1m36.439s   + 3.813

21.  Timo Glock            Virgin-Cosworth      1m36.507s   + 3.881

22.  Daniel Ricciardo      HRT-Cosworth         1m37.846s   + 5.220

23.  Nico Rosberg          Mercedes             engin tími í fyrstu umferð

24.  Tonio Liuzzi          HRT-Cosworth         engin tími í fyrstu umferð






Fleiri fréttir

Sjá meira


×