Formúla 1

Button á McLaren fljótastur á lokaæfingunni

Jenson Button hjá Mclaren liðinu.
Jenson Button hjá Mclaren liðinu. AP MYND: EUGENE HOSHIKO
Jenson Button á McLaren reyndist fljóastur á síðustu æfingu Formúlu 1 liða fyrir tímatökuna, sem verður í nótt í Suður Kóreu. Button varð 0.289 úr sekúndu á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma og var 0.833 á eftir Button.

Sebastian Vettel á Red Bull varð aðeins með níunda besta tíma, en lenti í tvígang í því að Torro Rosso ökumaður var fyrir honum í brautinni í hröðum hring.

Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 04.45 í nótt og verður í opinni dagskrá og endursýn kl. 11.45 á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×