Formúla 1

Kubica margbrotinn á hönd, handlegg og fæti eftir óhapp

Robert Kubica og Vitaly Petrov á frumsýningu Lotus Renault.
Robert Kubica og Vitaly Petrov á frumsýningu Lotus Renault. Mynd: Getty Images

Pólverjinn Robert Kubica brotnaði á hönd og fæti í óhappi í rallkeppni á Ítalíu í morgun og tilkynningu frá Lotus Renault, sem hann keppir með í Formúlu 1, segir að hann sé margbrotin á hægri hönd, handlegg og fæti.

Þar með er ljóst að Kubica keppir ekki í fyrsta Formúlu 1 móti ársins sem er í Barein 13. mars. Líklegt þykir að Bruno Senna taki sæti hans hjá Lotus Renault, en hann er annar varökumanna liðsins og frá Brasilíu.

Fréttamannafundur verður um mál Kubica síðar í dag fyrir utan spítalann þar sem hann er í aðgerð vegna meiðsla sinna.

Kubica ók sérútbúnum Skoda Fabia rallbíl í Ronde di Andora á Ítalíu með leyfi frá Formúlu 1 liði sínu. Hann hefur sprett úr spori í rallakstri áður, en þess má geta á að fyrstu árum á ferli sínum bjó hann á Ítalíu og keppti í kappakstri.

"Rally keppnir fara oftast fram á almennum vegum, þar sem almenn umferð er allra jafna, en lokað fyrir hana þegar keppni fer fram. Þegar alvarleg slys verða í rally, er það oftar en ekki hlutir í umhverfinu sem hafa þar mikið að segja, eins og í öðrum umferðarslysum", sagði Ólafur Guðmundsson m.a. í umfjöllun á kappakstur.is um málið.

"Það virðist vera tilfellið í slysi Robert Kubica í morgun, nokkuð sem menn óttast mjög hvað varðar endafrágang vegriða í almennri umferð, þar á meðal hér á landi.  Eftir að hafa skoðað myndir af flaki bílisins á slys stað má ráða að hann hafi lennt á vegriði, sem annað hvort er með röngum enda, eða þá að vegriðið hefur gefið sig og endi eins hluta þess stungist inn í bílinn."

Sjá myndband af vettvangi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×