Formúla 1

1. umferð: Ástralski kappaksturinn 2012

Birgir Þór Harðarson skrifar
Enn á ný hefst Formúlu 1 tímabilið í Melbourne í Ástralíu. Þetta verður í 28. skiptið sem ástralski kappaksturinn er haldinn og Melbourne fyrsta mót ársins í 15. skiptið.

Það stefnir í æsispennandi mótshelgi enda gaf undirbúningstímabilið óræðnar vísbendingar um hvað liðin ætla sér að gera til að sækja eða verja heimsmeistaratitilinn.

Brautin í Melbourne er lögð á götum borgarinnar, í Albert Park almenningsgarðinum. Hún er flöt, hröð og veitir alla jafna nokkuð skýra mynd af því sem koma skal. Í 70 % tilvika hefur sigurvegari ástralska kappaksturins í Melbourne orðið heimsmeistari.

En vegna þess hve flöt hún er kappaksturinn ekki líkamlega erfiður fyrir ökumennina. Jenson Button hefur sigrað tvisvar í Melbourne og segir brautina góða: "Brautin hefur mjög gott flæði þó hún sé götubraut, hægt er að finna góðan ryþma í keppninni og hún hefur nokkrar mjög hraðar beygjur sem einnig er óvenjulegt á götubrautum."

"Veggirnir eru nógu nálægt brautinni til að maður haldi einbeitingunni. Ég man ekki eftir móti hér sem ekki kom á óvart. Þetta er því frábær staður til að hefja tímabilið."

Vegna þess hve hröð hún er, og að meirihluti beygjanna séu hraðar og flæðandi, verða hægustu beygjurnar þær mikilvægustu. Beygjur 3 og 15 eru mikilvægustu svæðin.

Ef smellt er á "horfa á myndskeið með frétt" má líta ráspólshring Sebastian Vettel síðan í fyrra. Hringurinn er nánast fullkominn og mætti halda að bíllin sé á járnbrautarteinum á köflum. Hringtíminn var í takt við það: 1.23,529. Annar á ráslínunni var Lewis Hamilton 0,778 sekúntum á eftir. Það ætti að skýra hversu ótrúlegan hring Vettel tókst að setja saman í fyrra.

DRS svæði: Á ráskaflanum og á milli beygja 2 og 3

Dekkjagerðir í boði: Meðal (prime) og mjúk (option)

Efstu þrír í fyrra:

1. Sebastian Vettel - Red Bull

2. Lewis Hamilton - McLaren

3. Vitaly Petrov - Renault

Allt mótið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Föstudagur:

01:30 Æfing 1

05:30 Æfing 2

Laugardagur:

02:55 Æfing 3

05:50 Tímataka

Sunnudagur:

05:40 Ástralski kappaksturinn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×