Formúla 1

Vettel: Ég vil þriðja titilinn

Birgir Þór Harðarson skrifar
Vettel hefur ekki pláss fyrir verðlaunagripina sína. Þessi bikar hefur örugglega fengið góðan stað - enda heimsmeitarabikarinn.
Vettel hefur ekki pláss fyrir verðlaunagripina sína. Þessi bikar hefur örugglega fengið góðan stað - enda heimsmeitarabikarinn. nordicphotos/afp
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel vill þriðja heimsmeistaratitilinn í röð í ár. Nái hann því takmarki verður hann aðeins þriðji heimsmeistarinn í sögunni til að ná þremur titlum í röð.

Aðeins tveimur öðrum hefur tekist þetta. Juan Manuel Fangio vann sinn fjórða titil og þann þriðja í röð árið 1956 og Schumacher vann sinn fimmta titil og þriðja í röð árið 2002.

Vettel myndi setja met því engum hefur tekist að vinna fyrstu þrjá titlana sína í röð. "Það var mikill léttir að vinna minn fyrsta titil því þá hafði ég sannað fyrir mér að ég gæti gert þetta," sagði Vettel við Sky Sports. "Ég er enn hungraður og verð ennþá pirraður ef einhver vinnur mig."

Allri velgengninni fylgir þó lúxusvandamál úr óvæntri átt: "Ég hef ekki pláss fyrir alla þessa bikara!"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×