Formúla 1

Hamilton og Schumacher fljótastir á föstudagsæfingum í Kína

Hamilton var gríðarlega fljótur í Kína. Hann hefur sigrað kappaksturinn þar oftast allra eða tvisvar.
Hamilton var gríðarlega fljótur í Kína. Hann hefur sigrað kappaksturinn þar oftast allra eða tvisvar. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton á McLaren og Michael Schumacher á Mercedes voru fljótastir á föstudagsæfingum í Kína sem fram fóru í nótt. Lewis var lang fljótastur á fyrri æfingunni en rigning setti strik í reikninginn.

Schumacher var fljótastur á seinni æfingunum, rétt á undan Hamilton sem leit út fyrir að vera í fanta formi. Liðsfélagi Schumachers, Nico Rosberg, var annar á fyrri æfingunni en missti flugið á þeirri seinni.

Jenson Button, liðsfélagi Hamiltons, var heilum tveimur sekúntum á eftir félaga sínum á fyrri æfingunni en sótti í þeirri seinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×