Formúla 1

Ferrari hafa fundið lausn á vandamálum sínum

Birgir Þór Harðarson skrifar
Alonso er ánægður með breytingarnar sem liðið notaði á Ítalíu í morgun.
Alonso er ánægður með breytingarnar sem liðið notaði á Ítalíu í morgun. nordicphotos/afp
Ferrari-liðið ók endurhönnuðum bíl sínum á æfingum á Mugello brautinni á Ítalíu í dag. Sagt er að endurhönnunin muni færa liðinu um það bil 0,2 sekúntur hvern hring og jafnvel meira.

Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og ökumaður Ferrari, sagðist vera ánægður með breytingarnar sem eru aðallega á afturenda bílssins. Nú er afturendinn mun betur "pakkaður saman" en í fyrstu mótum ársins.

Það hefur áhrif á loftflæði bílsins sem skilar betri rásfestu og einnig hafa útblástursrörin verið færð. Það má einnig vera að í nýjum afturenda leynist nýjar lausnir á bæði fjöðrun bílsins og drifi.

Gary Anderson, sérlegur tækniráðgjafi BBC Sport og fyrrum tæknistjóri Jordan, Stewart og Jaguar-liðanna, segir bílinn líta út fyrir að vera venjulegri en áður. Ferrari lenti í vandræðum með róttæka hönnun bílsins á undirbúningstímabilinu í vetur. "Ný hönnun Ferrari-bílsins er skref í rétta átt."

Keppnisliðin æfa nú á Ítalíu. Alonso átti besta tíma á þriðjudag en Roman Grosjean hjá Lotus hefur verið fljótastur í gær og í dag. Næst keppa liðin í Barcelona á Spáni þann 13. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×