Formúla 1

Mótið í Mónakó undirbúið - myndir

Birgir Þór Harðarson skrifar
Tröllvaxnar snekkjur í tugatali lágu við hafnarbakkann.
Tröllvaxnar snekkjur í tugatali lágu við hafnarbakkann. mynd/biggi
Um helgina fór kappaksturinn í Mónakó fram og fagnaði Mark Webber sigri þegar hann ók Red Bull-bíl sínum yfir endalínuna. Það er þó ekki einfalt að skella upp kappakstursbraut í einu minnsta landi í Evrópu.

Kappakstursbrautin liggur á helstu götum borgarinnar. Það er þó ekki hægt að loka götunum fyrir almenna umferð heila viku fyrir kappaksturinn.

Blaðamaður Vísis var á ferðinni í Mónakó og tók meðfylgjandi myndir af undirbúninginum fyrir helgi.

Liðsmenn Force India-liðsins voru í óða önn að púsla bíl Nico Hulkenberg saman og gera kláran fyrir æfingar fimmtudagsins.mynd/biggi
Konunglega stúkan í Mónakó var komin upp og búið að teppaleggja stigana. Albert Prins hefur örugglega skemmt sér vel í ár enda með glæsilegt útsýni yfir ráslínuna.mynd/biggi
Niður við sundlaugina var búið að skella upp stúkum og verið að reisa vegriðin umhverfis brautina. Hér má einnig sjá hvernig borgin er byggð upp í fjöllin.mynd/biggi
Horft frá Mirabeau niður að Loews beygjunni, þeirri þrengstu í Formúlu 1, frá Mirabeau. Þarna er þung umferð á háannatíma á miðvikudegi fyrir mót.mynd/biggi
Mirabeau-beygjan er nefnd eftir hótelinu sem við hana stendur (fyrir aftan ljósmyndara). Brekkan niður að henni er mun brattari en hún virðist vera í sjónvarpinu.mynd/biggi
Þegar horft var yfir höfnina úr Beau Rivage-brekkunni blöstu við snekkjur í tugatali í höfninni. Einnig mátti heyra spænskar raddir verkamanna sem börðust við að koma fyrir risaskjáum, dekkjaveggjum og vegriðum í tæka tíð.mynd/biggi
Göturnar eru mjög þröngar í Mónakó. Þær eru jafnvel enn þrengri þegar fólk er búið að leggja bílum sínum að evrópskum sið. Hér má sjá útsýnið af VIP svölunum í Beau Rivage-brekkunni yfir Tabac-beygjuna og höfnina.mynd/biggi
Fyrsta beygja í brautinni í Mónakó er kölluð Ste Devote eftir þessari kirkju sem stendur nokkrum metrum frá.mynd/biggi
Eins og allt annað í Mónakó þá er útkoman út af viðgerðarsvæðinu þröng. Þó búið sé að setja upp vegrið og undirbúa borgina fyrir kappakstur er umferð hleypt um göturnar eins og um venjulegan dag væri að ræða í furstadæminu.mynd/biggi
Augu allra eru á þessum ljósum í upphafi hvers móts.mynd/biggi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×