Formúla 1

Alonso í forystustætið eftir kappaksturinn í Mónakó

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fernando Alonso á brautinni í Mónakó.
Fernando Alonso á brautinni í Mónakó. Nordic Photos / Getty
Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari hafnaði í þriðja sæti í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó. Fyrir það hlaut hann fimmtán stig og tók forystu í stigakeppni ökuþóra með 76 stig.

Alonso deildi efsta sæti stigakeppninnar með Þjóðverjanum Sebastian Vettel fyrir keppni dagsins. Kapparnir höfðu báðir 61 stig. Heimsmeistarinn Vettel hafnaði í fjórða sæti og hlaut tólf stig fyrir það.

Sigur Mark Webber, sem skilaði honum 25 stigum, varð til þess að hann náði félaga sínum hjá Red Bull að stigum. Kapparnir hafa báðir 73 stig.

Staðan hjá tíu efstu ökuþórunum að loknum sex keppnum

1. Fernando Alonso (Ferrari) 76 stig

2. Sebastian Vettel (Red Bull) 73 stig

3. Mark Webber (Red Bull) 73 stig

4. Lewis Hamilton (McLaren) 63 stig

5. Nico Rosberg (Mercedes) 59 stig

6. Kimi Raikkonen (Lotus) 51 stig

7. Jenson Button (McLaren) 45 stig

8. Romain Grosjean (Lotus) 35 stig

9. Pastor Maldonado (Williams) 29 stig

10. Sergio Perez (Sauber) 22 stig

Staðan í keppni bílasmiða

1. Red Bull 146 stig

2. McLaren 108 stig

3. Ferrari 86 stig

4. Lotus 46 stig

5. Mercedes 61 stig

6. Williams 44 stig

7. Sauber 41 stgi

8. Force India

9. STR-Ferrari

Caterham, Marussia og HRT eru enn án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×