Formúla 1

Raikkönen veit að hans tími mun koma

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kimi er sallarólegur þó kappaksturinn í Mónakó hafi ekki verið góður hjá Lotus-liðinu.
Kimi er sallarólegur þó kappaksturinn í Mónakó hafi ekki verið góður hjá Lotus-liðinu. nordicphotos/afp
Kimi Raikkönen er fullur sjálftrausts þrátt fyrir að hafa endað í níunda sæti í Mónakókappakstrinum um liðna helgi.

Kimi hefur staðið sig vel í upphafi tímabilsins. Níunda sæti í Mónakó var því vonbrigði fyrir Lotus-liðið sem hefur séð ökuþóra sína stíga á verðlaunapall í síðustu tveimur mótum. Þeir eru þó fullir sjálfstrausts og segja slæmt gengi í Mónakó ekki vera merki um að liðið sé að missa taktinn.

„Eitt mót breytir ekki þeirri staðreynd að við höfum verið sterkir allstaðar, jafnvel í Mónakó," sagði Raikkönen. „Mónakó er allt öðruvísi en hinar brautirnar á tímabilinu og ég hef ekki miklar áhyggjur af því að helgin gekk ekki alveg nógu vel."

„Það er erfitt að gera allt rétt á réttum tíma. Það þarf að gera til að vinna mótin. Ég hef unnið mót með öðrum liðum og ég er viss um að Lotus-liðið sé fært um að komast alla leið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×