Formúla 1

McLaren treystir á Button þrátt fyrir vonbrigði

Birgir Þór Harðarson skrifar
Button hefur átt í vandræðum með að finna jafnvægi í McLaren-bílnum. Pirelli-dekkin eru gríðarlega viðkvæm og hafa mikil áhrif á gengi hans.
Button hefur átt í vandræðum með að finna jafnvægi í McLaren-bílnum. Pirelli-dekkin eru gríðarlega viðkvæm og hafa mikil áhrif á gengi hans. nordicphotos/afp
Jenson Button, ökumaður McLaren í Formúlu 1, er full fær um að snúa við blaðinu eftir fjögur léleg úrslit úr síðustu mótum, að mati yfirmanna McLaren liðsins.

Button hefur aðeins skorað eitt stig í síðustu fjórum mótum fyrir McLaren-liðið og er áttundi í heimsmeistarabaráttunni. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, er efstur á blaði eftir sigurinn um helgina.

Button hefur sagst vera hissa á slöku gengi í síðustu mótum eftir frábæra byrjun á tímabilinu þar sem hann vann í Ástralíu og varð annar í Kína.

"Við höfum ekki langtíma áhyggur af gengi Buttons," sagði Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren, við veftímaritið Autosport. "Þessu fylgir bara pirringur og vonbrigði."

"Jenson er frábær ökumaður og okkur tókst ekki að þjónusta hann nógu vel í Kanada. En við vitum að hann er sterkur andlega og lætur svona hluti ekki á sig fá. Hann mun halda haus og gæti vel orðið sá ökumaður sem vinnur fyrstur tvö mót í sumar."

Button hefur átt í erfiðleikum með að finna jafnvægi í McLaren MP4-27 bílnum. Hann er vanalega sá ökuþór sem hefur besta stjórn á dekkjunum og fer vel með þau undir venjulegum kringumstæðum. Vandræði hans hafa þó gríðarleg áhrif á dekkin og í Kanada féll hann aftarlega í röðina vegna ofhitunar afturdekkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×