Formúla 1

Tímatakan stöðvuð vegna rigninga

Birgir Þór Harðarson skrifar
Roman Grosjean var einn þeirra sem fór útaf á tímatökuhring.
Roman Grosjean var einn þeirra sem fór útaf á tímatökuhring. nordicphotos/afp
Tímatökunni fyrir breska kappaksturinn á Silverstone var frestað vegna úrhellis. Þó regndekkin losi 60 lítra af vatni á sekúndu dugaði það ekki og það var ekkert annað í stöðunni.

Ástæðan fyrir því að Formúlu 1 bílar geta ekki ekið í svona mikilli rigningu, eins og götubílar okkar, er að F1 bílar vega aðeins rúmlega 600 kíló, dekkin eru mun breiðari og hæð undirvagnsins frá vegi telur aðeins nokkra millimetra, hugsanlega sentimetra.

Fyrsta lota tímatökunnar er búin og þar féll Jenson Button úr leik. Hann mun ræsa átjándi þó tímatökunni verði áfram haldið. Það byrjaði svo að rigna þegar fyrstu lotunni var að ljúka. Sex mínútur eru eftir af annari lotu.

Dómarar og mótshaldarar eru nú að velta fyrir sér hvort stöðva megi tímatökuna og fara heim eða hvort það eigi að bíða eftir að það stytti upp. Fari menn heim nú mun Sergio Perez á Sauber vera á ráspól, Lewis Hamilton á McLaren í öðru sæti og Nico Rosberg á Mercedes þriðji.

Það verður þó að teljast ólíklegt þar sem engin tímamörk eru á því hversu lengi tímataka fyrir kappaktur getur staðið. Stytti ekki upp fyrir myrkur verður tímatökunni frestað fram á morgun. Fordæmi er fyrir því. Það var gert í Japan fyrir nokkrum árum. Tímatakan verður að fara fram og klárast áður en keppt er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×