Formúla 1

Guðmundur Ingi Íslandsmeistari í Gokart 2012

Birgir Þór Harðarson skrifar
Guðmundur Ingi ásamt Erni og Steini við verðlaunaafhendingu.
Guðmundur Ingi ásamt Erni og Steini við verðlaunaafhendingu. Mynd/Birgir Þór
Guðmundur Ingi Arnarson varði Íslandsmeistaratitil sinn í Gokart í dag þegar hann vann fjörugt mót á keppnisbraut AÍH í Hafnarfirði. Guðmundur vann allar loturnar þrjár og var búinn að tryggja sér titilinn eftir tvær lotur.

Ragnar Skúlason var sá eini sem átti möguleika á að skáka Guðmundi Inga í titilslagnum en von hans var úti þegar hann náði ekki að klára fyrstu lotu. Hann lenti í samstuði, endaði utan brautar og á kyrrstæðum bíl í brautarkantinum.

Ragnar komst inn á brautina aftur en bræddi úr mótornum vegna skemmdar á vatnskassanum. Hann náði að skipta um mótor fyrir næstu lotu og varð annar í síðustu lotunum.

Sjö ökuþórar tóku þátt í mótinu í dag. Örn Óli Strange og Steinn Jónsson voru jafnir með 17 stig en Örn Óli náði öðru sæti með betri innbirðis árangri milli þeirra Steins.

Næsta mót verður haldið laugardaginn 8. september í Hafnarfirði en það er bikarmót og telur ekki til Íslandsmeistara.

Úrslitin voru á þessa leið:

1. Guðmundur Ingi 30 stig

2. Örn Óli Strange 17 stig

3. Steinn Jónsson 17 stig

4. Ragnar Skúlason 16 stig

5. Hinrik Wöhler 14 stig

6. Ásgeir Elvarsson 11 stig

7. Sindri Jónsson 0 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×