Formúla 1

Webber sleppur með áminningu fyrir kappaksturinn

Birgir Þór Harðarson skrifar
Webber er ekki refsað fyrir að hafa gert tæknileg mistök í tímatökunum.
Webber er ekki refsað fyrir að hafa gert tæknileg mistök í tímatökunum.
Dómarar í bandaríska kappakstrinum hafa ákveðið að áminna Mark Webber, ökumann Red Bull í Formúlu, fyrir að missa af vigtun eftir fyrstu lotu tímatökunnar í gær.

Webber mun ræsa þriðji í kappakstrinum á eftir liðsfélaga sínum Sebastian Vettel og Lewis Hamilton á McLaren. Mál hans var svo rannsakað af dómurum eftir tímatökuna.

Í opinberri yfirlýsingu dómaranna segir að Webber hafi ekki farið með bílinn beint í bílskúr FIA til að láta vigta sig þegar honum voru gefin merki um að gera slíkt. "Eftir að hafa áttað sig á mistökunum sendi liðið bílinn til FIA um leið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×