Formúla 1

Alonso verður ekki með í Jerez

Birgir Þór Harðarson skrifar
Þeir Massa og Alonso deila með sér fyrstu æfingadögum tímabilsins.
Þeir Massa og Alonso deila með sér fyrstu æfingadögum tímabilsins. nordicphotos/afp
Fernando Alonso, stjörnuökuþór Ferrari-liðsins, mun ekki taka þátt í fyrstu æfingum undirbúningstímabilsins í Jerez á Spáni í byrjun febrúar. Felipe Massa og nýráðinn tilraunaökuþór liðsins, Pedro de la Rosa, verða í eldlínunni.

Ekið verður dagana 5. til 8. febrúar í Jerez og mun Massa hljóta þann heiður að aka fyrstu þrjá dagana en de la Rosa tekur við síðasta daginn. Alonso verður á hliðarlínunni þar en ekur fyrstu þrjá dagana í Barcelona í lok febrúar.

Strax hafa vaknað samsæriskenningar í kjölfar þessa alls og vilja sumir meina að þetta sé skýrt merki um völd Alonso innan Ferrari-liðsins. Hann vilji einfaldlega ekki eyða undirbúningstíma sínum í leiðinlega tilraunahringi sem snúast meira um þreytandi tækniatriði. Aðrir segja að þetta sé fagleg ákvörðun Ferrari-liðsins sem vilji forðast sama vesen og henti þá í fyrra.

Meiri líkur eru þó á því að dreifing ökumannanna sé aðeins raunhæf áætlun til að fá sem mest úr hverjum ökuþór fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×