Formúla 1

Sutil prófar Force India í Barcelona

Birgir Þór Harðarson skrifar
Sutil ásamt umboðsmanni sínum við dómsuppkvaðningu í Þýskalandi 30. janúar í fyrra.
Sutil ásamt umboðsmanni sínum við dómsuppkvaðningu í Þýskalandi 30. janúar í fyrra. nordicphotos/afp
Adrian Sutil mun snúa aftur í Formúlu 1 í vikunni því Force India-liðið hefur staðfest að þýski ofbeldismaðurinn muni fá að spreyta sig á æfingum keppnisliðanna í Barcelona.

Sutil ók fyrir Force India frá 2008 til 2011 en var látinn fara í lok þess árs eftir að hafa verið ákærður fyrir að ráðast á viðskiptajöfur frá Lúxembúrg fyrir kínverska kappaksturinn. Sutil barði hann með kampavínsglasi og var dæmdur, fyrir ári síðan, í 18 mánaða skilorðsbundna fangelsisvist og þurfti að borga 200.000 evrur í sekt.

En nú er Sutil kominn aftur og vill keppa með Force India í sumar. Liðið á enn eftir að velja sér annan ökumann til að aka við hlið Paul di Resta en Jules Bianchi er einnig um hituna. Bianchi ók fyrir Force India í Jerez fyrir tveimur vikum.

Sutil fór og mátaði sætið sitt í höfuðstöðvum liðsins í Silverstone í síðustu viku en þá var aðeins talað um að möguleiki væri á því að Sutil fengi að prófa.

Sutil á fleygiferð í Abu Dhabi árið 2011. Hann ók í fjögur ár fyrir Force India áður en hann var látinn fara vegna viðskipahagsmuna liðsins.nordicphotos/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×