Formúla 1

Baulað á Vettel fyrir að vera langbestur

Vettel fagnar um helgina.
Vettel fagnar um helgina.
Sebastian Vettel er í algjörum sérflokki í Formúlunni en það hefur ekki skapað honum sérstakar vinsældir. Þvert á móti er reglulega baulað á hann.

Það gerðist aftur um helgina að baulað var á hann er hann tók á móti verðlaunum sínum. Svo virðist vera sem formúluunnendur séu orðnir þreyttir á yfirburðum hans en þetta hefur verið að gerast upp á síðkastið.

Vettel er svo gott sem búinn að vinna sinn fjórða heimsmeistaratitil í röð. Hann er 60 stigum á undan Fernando Alonso eftir kappaksturinn í Singapúr um helgina.

Mótherjar hans hafa gagnrýnt þessa hegðun aðdáenda og segja Vettel ekki eiga hana skilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×