Formúla 1

Sautjánda keppnin fer fram í Abu Dhabi um helgina

Rúnar Jónsson skrifar
Yas Marina í Abu Dhabi
Yas Marina í Abu Dhabi nordicphotos/getty
Sautjánda keppni tímabilsins í Formúlunni fer fram um helgina á hinni glæsilegu braut Yas Marina í Abu Dhabi.

Þrátt fyrir að Sebastian Vettel og RedBull liðið hafi tryggt sér Heimsmeistaratitilinn í síðustu keppni  á Indlandi, þá verður klárlega hart barist um sigur í keppninni.

Á síðasta ári var það Kimi Raikkonen sem fagnaði sigri í Abu Dhabi en Raikkonen hefur ekki náð að sigra í keppni síðan í Ástralíu, sem var fyrsta keppni ársins.

Vettel hefur sigrað í 10 af 16 keppnum tímabilsins og í síðustu 6 í röð en Vettel stefnir á að jafna met Schumachers með sigri í Abu Dhabi, og ná þar með að sigra í sjö keppnum í röð á einu og sama tímabilinu.

Tveimur æfingum er lokið á brautinni í dag , og var það Romain Grosjean á Lotus sem var fljótastur á þeirri fyrri en Sebastian Vettel á Red Bull á seinni æfingunni.

Tímatakan er á morgun laugardag klukkan 12.50 og keppnin á sunnudag klukkan 12.30 allt í beinni á Stöð 2 Sport & HD.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×