Íslenski boltinn

Keflavík fær norskan framherja frá Viking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hummervoll spilaði einn leik með Viking í norsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Hummervoll spilaði einn leik með Viking í norsku úrvalsdeildinni í fyrra. mynd/heimasíða viking
Keflavík er að fá norska framherjann Martin Hummervoll að láni frá Viking Stavanger í Noregi. Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, staðfesti þetta í samtali við 433.is í dag.

Hummervoll þessi kemur til Keflavíkur á morgun og mun leika með liðinu út þetta tímabil.

Hummervoll, sem er 19 ára, er annar framherjinn sem Keflavík fær í félagaskiptaglugganum en í síðustu viku samdi Bandaríkjamaðurinn Chukwudi Chijindu við liðið. Keflavík hefur einnig samið við tógóska miðjumanninn Farid Zato.

Keflavík er í mjög vondri stöðu, á botni Pepsi-deildarinnar með einungis fimm stig, sex stigum frá öruggu sæti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×