Íslenski boltinn

Thomas Christensen: Sé ekki eftir því að hafa komið til Íslands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thomas lék fjölda leikja með yngri landsliðum Dana á sínum tíma.
Thomas lék fjölda leikja með yngri landsliðum Dana á sínum tíma. vísir/pjetur
Danski varnarmaðurinn Thomas Guldborg Christensen tekur á morgun þátt í sínum fyrsta bikarúrslitaleik á ferlinum þegar Valur mætir KR á Laugardalsvellinum.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessum stórleik en þetta er minn fyrsti bikarúrslitaleikur. Maður er í þessu til að spila þessa stóru leiki,“ sagði Thomas þegar blaðamaður Vísis ræddi við hann í höfuðstöðvum KSÍ í gær.

„Sagan og rígurinn milli liðanna skiptir miklu máli. Við viljum gera okkar allra besta fyrir Val og stuðningsmenn félagsins og KR-ingar það sama. Það verður mikil undiralda í leiknum og hart barist sem gerir þetta að enn betri leik. Vonandi verður leikurinn góður og úrslitin hagstæð.“

Thomas sækir að Jonathan Glenn, framherja Breiðabliks.vísir/anton
Valsmenn hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum í Pepsi-deildinni og stimpluðu sig svo gott sem úr toppbaráttunni þegar þeir töpuðu 0-1 fyrir Breiðabliki á mánudaginn. Thomas vonast til að þetta slæma gengi hvetji Valsara enn frekar til dáða á morgun.

„Vonandi hefur það góð áhrif á okkur og við verðum enn ákveðnari í að vinna. Við höfum ekki verið að spila illa en höfum ekki verið að skora mörk. Vonandi koma þau á laugardaginn,“ sagði Thomas sem segir landa sinn, Patrick Pedersen, vera mikilvægan hlekk í liði Vals og vonast til að hann verði með á morgun en Pedersen hefur glímt við meiðsli á undanförnum vikum.

„Patrick er okkar aðalmarkaskorari og mjög góður leikmaður svo hann er liðinu mikilvægur. En ef hann verður ekki með koma bara aðrir inn í staðinn. Vonandi verður Patrick með en ef ekki þá finnum við aðrar lausnir.“

Thomas var valinn í lið umferða 1-11 í Pepsi-deildinni hjá Fréttablaðinu.vísir/andri marinó
Thomas kom til Vals í byrjun tímabilsins frá sænska liðinu Hammarby þar sem hann var kominn aftarlega í goggunarröðina.

Daninn hefur haft góð áhrif á lið Vals og spilað vel. Hann var m.a. valinn í lið umferða 1-11 í Pepsi-deildinni af Fréttablaðinu og var í 7. sæti í einkunnagjöf blaðsins eftir fyrri hluta mótsins. Thomas kveðst ánægður með lífið á Íslandi.

„Þetta hefur verið mjög gaman. Leikstíllinn og hugsunarhátturinn hér er frábrugðinn því sem ég er vanur. En mér líkar vel hérna og við höfum unnið marga leiki,“ sagði Daninn geðþekki sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun sinni að koma til Íslands.

„Nei, alls ekki. Ég var ekki inni í myndinni hjá Hammarby, sem hafa reyndar ekki verið að vinna leiki síðan ég fór. Þetta var góð breyting fyrir mig. Ég er hjá góðu félagi sem er með góða þjálfara svo ég hef notið dvalarinnar hér.“

Samstarf Thomasar og Orra gengur vel.vísir/andri marinó
Thomas hefur spilað við hlið hins tvítuga Orra Sigurðar Ómarssonar í miðri vörn Vals í sumar en þeir hafa náð vel saman þótt það muni 11 árum á þeim í aldri. Thomas segir gott að spila með Orra og vonast til að geta kennt honum eitthvað.

„Ég reyni eins og ég get að leiðbeina og hjálpa honum og vonandi hef ég góð áhrif á hans feril. Orri er mjög þroskaður þrátt fyrir ungan aldur og er mjög hæfileikaríkur. Leikur hans ber þess merki að hann var hjá dönsku félagi,“ sagði Thomas og bætti við:

„Það kæmi mér ekki á óvart ef Orri færi í atvinnumennsku og myndi spila með landsliðinu í framtíðinni. Ég vona að hann nái langt. Hann hefur hæfileikana en það eru nokkrir þættir sem hann þarf að laga og vonandi gerir hann það.“

Orri var á sínum tíma á mála hjá danska liðinu AGF og Thomas segir gott að geta talað við félaga sinn í miðri Valsvörninni á dönsku.

„Það er kostur, hann skilur málið og við tölum saman á dönsku. Hann er einn af bestu félögum mínum í liðinu,“ sagði Thomas Christensen að lokum.


Tengdar fréttir

Patrick, Haukur Páll og Ingvar myndu ekki spila væri leikurinn í kvöld

Patrick Pedersen, aðalframherji Valsmanna í Pepsi-deild karla, er í kapphlaupi við tímann fyrir bikarúrslitaleikinn gegn KR á laugardaginn. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna, segir í samtali við Vísi að Pedersen sé ekki fótbrotinn. Um helmingslíkur eru á því að sá danski spili á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×