Íslenski boltinn

Freyr: Vorum búnir að standa allt af okkur

Ingvi Þór Sæmundsson á Leiknisvelli skrifar
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis. Vísir/Ernir
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, var að vonum súr í broti eftir tap Breiðhyltinga fyrir FH í kvöld.

Hann bar þó höfuðið hátt og kvaðst stoltur af sínum mönnum.

"Þetta er með því sárara. Við erum mjög vonsviknir," sagði Freyr eftir leikinn en hvað gerðist í sigurmarki FH sem Steven Lennon skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma?

"Við erum með boltann 15 sekúndum áður, á okkar sóknarþriðjungi, töpum honum, erum lengi að pressa og erum út um allan völl. Þeir fara upp vinstra megin og koma boltanum fyrir og þar eru þeir með frábæran leikmann sem tókst að skora," sagði Freyr.

"Við vissum að þetta FH-lið er frábært en við vorum búnir að standa allt af okkur. Við vorum heppnir í eitt skiptið þegar boltinn fór í slá en annars gekk þetta vel.

"Planið gekk frábærlega og strákarnir voru duglegir. Við prófuðum nýja hluti á móti FH. Það þarf að skera af þeim nokkur vopn til að eiga möguleika og við áttum möguleika í dag og rúmlega það."

Leiknismenn ógnuðu sama og ekkert í kvöld og voru ekki líklegir til að skora. Freyr sagði það viðbúið.

"Það var svolítið meðvitað. Við ætluðum að eiga ákveðin upphlaup og komast í stöður sem við ætluðum að nýta okkur. Við gerðum það stundum vel en alltof oft illa, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við vorum ragir á boltanum en við löguðum það í seinni hálfleik.

"Þeir náðu að þrýsta á okkur í seinni hálfleik en við stóðum það af okkur," sagði Freyr en hvaða áhrif mun þetta sárgrætilega tap hafa á Leiknismenn?

"Þegar ég fór inn í klefa áðan sá ég enga hvatningu í þessu. En við vorum að spila við besta lið landsins og við stjórnuðum leiknum, að okkar mati, með varnarleik.

"Strákarnir mega alveg vera stoltir af mjög mörgu sem þeir gerðu í dag," sagði Freyr að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×