Íslenski boltinn

Hewson framlengir við FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hewson verður áfram í herbúðum FH.
Hewson verður áfram í herbúðum FH. mynd/facebook-síða fhinga.net
Enski miðjumaðurinn Sam Hewson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við FH. Nýji samningurinn gildir út tímabilið 2018.

Hewson, sem er 26 ára, kom til FH frá Fram fyrir tímabilið í fyrra en hann hefur alls leikið 78 leiki í efstu deild hér á landi og skorað tvö mörk.

Hewson hefur ekkert leikið með FH síðan í byrjun júní en hann fótbrotnaði í leik gegn Víkingi 7. júní.

Hewson er uppalinn hjá Manchester United en kom til Íslands um mitt tímabil 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×