Íslenski boltinn

1. deildin klárast á morgun | Þrír leikir í beinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þróttarinn Viktor Jónsson er tveimur mörkum á eftir Haukamanninum Björgvini Stefánssyni í baráttunni um markakóngstitilinn í 1. deild.
Þróttarinn Viktor Jónsson er tveimur mörkum á eftir Haukamanninum Björgvini Stefánssyni í baráttunni um markakóngstitilinn í 1. deild. vísir/anton
Lokaumferð 1. deildar karla fer fram á morgun en þá verða leiknir sex leikir sem allir hefjast klukkan 14:00.

Ljóst er að Víkingur Ólafsvík vinnur deildina en Ólsarar fá bikarinn afhentan eftir leik sinn við Fjarðabyggð á heimavelli.

Fái Víkingur stig gegn Fjarðabyggð slær liðið stigametið í 1. deild. Ólsarar jöfnuðu stigamet ÍA frá 2011 þegar þeir unnu Fram í síðustu umferð en metið er 51 stig.

Grótta og BÍ/Bolungarvík eru fallin og því ríkir einungis spenna um hvaða lið fylgir Víkingi upp í Pepsi-deildina.

Þróttur er með pálmann í höndunum en Þróttarar, sem mæta Selfossi á Valbjarnarvelli, eru með þriggja stiga forskot á KA sem er í 3. sætinu.

Ekki nóg með það heldur er Þróttur með mun betri markatölu en KA, eða 23 mörk í plús gegn 17. KA-menn mæta erkifjendunum í Þór á Þórsvelli á morgun og þurfa að vinna þann leik með miklum mun og treysta á að Þróttarar tapi fyrir Selfyssingum. Fái Þróttur hins vegar stig er liðið öruggt upp. Það þarf því ansi mikið að ganga á ef Þróttur verður ekki meðal þátttökuliða í Pepsi-deildinni 2016.

Þór er með 38 stig í 4. sætinu, jafnmörg og KA en mun lakari markatölu. Þórsarar eiga tölfræðilega möguleika á að komast upp en ef það á að ganga upp þarf Þór að vinna KA með ævintýralega miklum mun og treysta á að Selfyssingar vinni Þrótt.

Hægt verður að fylgjast með þremur leikjum í lokaumferðinni í beinni útsendingu. Leikur Víkings og Fjarðabyggðar verður sýndur í beinni útsendingu á Bravó en Vísir, í samstarfi við SportTV, sýnir beint frá grannaslag Þórs og KA og leik Þróttar og Selfoss.

Leikirnir í lokaumferðinni (hefjast allir klukkan 14:00):

Víkingur Ó - Fjarðabyggð      Bravó

Þór - KA                              Vísir/SportTV

Þróttur - Selfoss                   Vísir/SportTV

HK - Haukar

Grindavík - Fram

BÍ/Bolungarvík - Grótta

Skjáskot af vef KSÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×