Íslenski boltinn

Barist á toppi og botni í Pepsi-deildinni | LUV-leikurinn í Kaplakrika

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik Fylkis og Breiðabliks.
Úr leik Fylkis og Breiðabliks. vísir/stefán
Fimm leikir í fjórðu síðustu umferðinni í Pepsi-deild karla fer fram í dag, en línur eru heldur betur að skýrast í topp- og botnbaráttu. Sjötti og síðasti leikur umferðarinnar fer svo fram annað kvöld.

Risarnir ÍA og KR mætast á Norðurálsvellinum. ÍA er ekki alveg sloppið við fall, en þeir eru fjórum stigum fyrir ofan Leikni og eru í níunda sætinu. KR er sjö stigum á eftir toppliði FH og ekki miklar líkur á því að titilinn sé á leið í Vesturbæinn.

LUV-leikurinn fer fram í Kaplakrika, en LUV-leikurinn er spilaður í minningu Hermanns Fannar Valgarðssonar, mikils FH-ings, sem lést langt um aldur fram árið 2011.

Hluti aðgangseyrisins rennur í LUV-sjóðinn sem hefur stutt mörg góð málefni á síðustu árum, en í hálfleik verður meðal annars happdrætti þar sem börn Hermanns draga úr seldum miðum. FH með sex stiga forskot á toppnum, en ÍBV þremur stigum frá fallsæti.

Víkingur, í sjöunda sætinu, fær Breiðablik í heimsókn í Víkina. Ætli Blikarnir að halda í við topplið FH verða þeir að fá ekkert annað en þrjú stig, en þeir eru í öðru sætinu með 36 stig - sex stigum á eftir FH. Víkingur siglir lygnan sjó; í sjöunda sætinu með 21 stig.

Valsmenn sem hafa verið að gera gott mót á tímabilinu fá nánast fallna Keflvíkinga í heimsókn. Keflavík er á botninum með stjög og eru ellefu stig í öruggt sæti hjá þeim þegar fjórir leikir eru eftir. Valsmenn eru í fjórða sætinu með 29 stig.

Leiknis-menn þurfa nauðsynlega á öllum þremur stigunum að halda gegn Fjölni á heimavelli. Leiknir er í fallsæti, með fimmtán stig, þremur stigum frá ÍBV. Fjölnismenn eru í því fimmta með 27 stig og geta mögulega skotist upp í fjórða sætið með hagstæðum úrslitum.

Pepsi-mörkin verða svo einnig á dagskránni í kvöld, en þau verða klukkustund fyrr en vanalega eða klukkan 21:00.

Leikir dagsins:

17.00 ÍA - KR (Norðurálsvöllurinn)

17.00 FH - ÍBV Kaplakrikavöllur)

17.00 Víkingur - Breiðablik (Víkingsvöllur)

17.00 Valur - Keflavík (Laugardalsvöllur)

17.00 Leiknir - Fjölnis (Leiknisvöllur)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×