Íslenski boltinn

Kristján: Ég hefði aldrei fallið með þetta lið í höndunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég fullyrði það, að ég hefði aldrei fallið með þetta lið í höndunum,“ segir Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari Keflavíkur og núverandi sérfræðingur í markaþættinum Pepsi-mörkin á Stöð 2 Sport í kvöld.

Kristján og Þorkell Máni Pétursson, voru reknir sem þjálfarar liðsins eftir sex umferðir í sumar.

Keflavík hefur aðeins fengið sjö stig í sumar og fengið á sig 59 mörk. Ekkert lið hefur fengið jafn fá stig í tólf liða deild. Í dag tapaði liðið 7-0 fyrir Stjörnunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×