Íslenski boltinn

Hjörvar um tveggja þjálfara kerfið: Lærdómur sumarsins er að þetta virkar ekki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknir er kominn með annan fótinn niður í 1. deild eftir 3-1 tap fyrir Fylki á útivelli í 20. umferð Pepsi-deildarinnar í gær.

Leiknismenn eru nú fjórum stigum frá öruggu sæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir og staða Breiðhyltinga er því orðin ansi slæm.

Leiknismenn tefla fram þjálfaratvíeyki, þeim Frey Alexanderssyni og Davíð Snorra Jónassyni, en í Pepsi-mörkunum í gær velti Hjörvar Hafliðason því upp hvort það væri tilviljun að bæði neðstu lið deildarinnar séu með tvo aðalþjálfara.

„Ég velti því fyrir mér hvort það sé tilviljun að tvö neðstu lið deildarinnar séu með þetta tveggja þjálfara kerfi og af hverju Víkingarnir lögðu það til hliðar? Ég velti því fyrir mér hvort það sé tilviljun að engin alvöru lið í evrópskum fótbolta séu með þetta tveggja þjálfara kerfi?“ sagði Hjörvar.

„Ég veit að það er erfitt að segja þetta eftir árangur landsliðsins. En ákvörðun eins og að spila 4-4-2 í dag, annar þeirra hlýtur að hafa fengið þá hugmynd. Það hljóta alltaf að vera einhverjir árekstrar.

„Ég held að þetta virki ekki, þó þeir hafi farið upp svona. Það fá ekki tveir menn sömu hugmyndina á sama deginum og sama tímanum. Ég held að lærdómur sumarsins sé að þetta virki ekki,“ sagði Hjörvar en þeir Freyr og Davíð eru á sínu þriðja tímabili með Leikni en liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni í fyrsta skipti í fyrra.

Arnar Gunnlaugsson, sem var gestur Harðar Magnússonar í Pepsi-mörkunum ásamt Hjörvari, hefur reynslu af þessu tveggja þjálfara kerfi en hann þjálfaði ÍA í tvígang ásamt Bjarka, tvíburabróður sínum.

„Þetta var mjög erfitt,“ sagði Arnar um samstarfið. „Ég er alveg sammála þessu og þetta eru sterk rök en ég held að Leiknir og Keflavík séu tvö neðstu liðin því þau eru með minnstu gæðin í sínum leikmannahópum. Það er ekkert flókið, fyrir mér eru alltaf tvö lélegustu liðin sem falla.“

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×