Bílar

Færri og færri með ökuskírteini í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Ungmenni í bílatíma í Bandaríkjunum.
Ungmenni í bílatíma í Bandaríkjunum.
Komið hefur í ljós að það er ekki bara í yngsta aldurshópi þeirra sem aldur hafa til að taka ökupróf sem þeim hefur fækkað sem kjósa að taka prófið. Transportation Research Institute í Bandaríkjunum heldur vel utan um tölu þeirra sem taka ökupróf og í aldurshópnum frá 16 til 44 ára hefur þeim fækkað ört á síðustu árum.

Árið 2008 voru 31,1% 16 ára einstaklinga með próf en aðeins 24,5% árið 2014. Ef skoðaður er aldurshópurinn 20-24 ára féll þetta hlutfall úr 82,0% í 76,7% á sama tíma. Í aldurshópnum 45-69 féll hlutfallið líka og einnig í aldurshópi 70 ára og eldri.

Sá aldurshópur sem líklegastur er til að hafa ökupróf er 60-64 ára og eru 92,1% þeirra með próf. Árið 2008 var það hlutfall reyndar 95,9%. Betri almenningssamgöngur og tilkoma Uber og Lyft hefur ef til haft mest áhrif í þessa veruna, sem og breyttur lífsstíll margra, ekki síst í borgum Bandaríkjanna.

Könnun sem gerð var árið 2013 benti einnig til þess að færri og færri í yngsta aldurshópnum er líklegir til að finna sér vinnu til að hafa efni á því að eiga og reka bíl og í henni kom einnig í ljós að 22% aðspurðar á aldrinum 18-22 ára ætluðu sér aldrei að taka bílpróf.






×