Bílar

Formúlu 1 bíll glímir við brekkurnar í Kitzbühel

Finnur Thorlacius skrifar
Toro Rosso liðið í Formúlu 1 tók bíl sinn á dögunum í skíðabrekkurnar í Kitzbühel í Austurríki til að sjá hvernig hann myndi standa sig í glímunni við skíðabrekkurnar þar.

Bíllinn var á keðjum allan hringinn og þannig búinn stóða hann sig vel og ekki sakar að hafa 800 hestöfl sér til aðstoðar. Ökumaður bílsins var Max Verstappen, ökmaður Toro Rosso liðsins, og sýnir hann góða takta við aksturinn og kann ekki síður vel við sig í snjónum en á malbikinu í Formúlu 1 brautunum.

Þeir eru vafalasut margir sem vildu vera í hans sporum þarna og ekki vantaði áhorfendurnar í Kitzbühel er hann tekur góða spretti í skíðabrautunum á Formúlu 1 bílnum. Frumlegt og skemmtilegt.






×