Bílar

Fimmtíu bílar á stórsýningu BL á laugardag

Finnur Thorlacius skrifar
BL selur bíla frá 9 bílaframleiðendum.
BL selur bíla frá 9 bílaframleiðendum.
Bílaumboðið BL ehf. blæs til stórsýningar nk. laugardag milli kl. 12 og 16 og sýnir nálega fimmtíu nýja bíla í sýningarsölum fyrirtækisins við Sævarhöfða.

Á sýningunni kynna sölumenn mesta úrval nýrra bíla landsins í öllum stærðar- og verðflokkum en þess má geta að um 130 mismunandi verð eru í boði eftir útbúnaðarstigi bílanna.

Í tilefni dagsins verða boðin sérstök tilboð auk þess sem allir sem staðfesta kaup fá veglegan kaupauka með bílnum.






×