Bílar

Toyota lækkar söluáætlanir fyrir Prius

Finnur Thorlacius skrifar
Nýr Toyota Prius er laglegri en forverinn.
Nýr Toyota Prius er laglegri en forverinn.
Lækkandi olíuverð í heiminum öllum hefur minnkað eftirspurn eftir tvinnbílum þar sem kaupendum bíla er slétt sama um eyðslu þeirra og sækja því ekki eins mikið í tvinnbíla og losna með því við þann aukakostnað sem þessi aukabúnaður felur í sér.

Fjórða kynslóð Toyota Prius kom á markað í Japan í desember og von er á bílnum á Evrópumarkað sem og til Bandaríkjanna snemma á þessu ári. Í fyrri áætlunum Toyota var gert ráð fyrir að selja 400.000 Prius á ári, en í nýjum áætlunum Toyota er gert ráð fyrir 300-350.000 bílum.

Bensín hefur lækkað um nær helming frá miðju ári 2014 í Bandaríkjunum, en þar er stærsti markaðurinn fyrir Toyota Prius. Það hefur orðið til þess að 12% færri Prius bílar seldust þar árið 2015 en árið á undan.

Nýr Prius er sagður 20% eyðslugrennri en forverinn og það sama á við mengun hans. Mengun hans fer úr 86 g/km af Co2 í 70 g/km. Eyðslan fer úr 3,9 lítrum í 3,0 lítra. Toyota hefur selt fjórar milljónir Prius bíla frá því hann kom fyrst á markað.






×