Bílar

Opel sýning á morgun

Finnur Thorlacius skrifar
Opel Mokka.
Opel Mokka.
Bílabúð Benna heilsar nýju ári með Opel-sýningu á laugardaginn. Í fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna kemur fram að Opel hafi átt góðu gengi að fagna á síðasta ári, fyrsta heila árinu eftir að Bílabúð Benna tók við umboðinu.

Til sýnis á laugardaginn verður rjóminn úr vörulínu Opel, meðal annars bílar sem bæði neytendur og fagmenn hafa hlaðið lofi og verðlaunum. Fólk er hvatt til að koma og máta Opel gæðin við sig og sinn lífsstíl. Opel sýningin er hjá Bílabúð Benna, bæði í Reykjavík og Reykjanesbæ á morgun, laugardag og stendur frá kl. 12:00 til 16:00.

Léttar veitingar verða í boði.






×