Bílar

Vegfarendum í bílaborginni Stuttgart ráðlagt að nota ekki bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Mengun í Stuttgart.
Mengun í Stuttgart.
Í Stuttgart eru höfuðstöðvar bæði Mercedes Benz og Porsche og hún því þekkt bílaborg. Það er því örugglega ekki ljúft fyrir borgarstjórnina í Stuttgart að senda frá sér hvatningu til íbúa hennar að vegfarendur noti ekki bíla sína vegna mikillar mengunar í borginni.

Þeir voru hvattir til að nota almenningssamgöngur, leigubíla sem ganga fyrir rafmagni eða sameinast sem mest í bíla. Stuttgart er fyrsta þýska borgin þar sem borgaryfirvöld hefur þurft að gefa frá sér svona yfirlýsingu vegna mengunar.

Á máudaginn mældist þar 89 míkrógrömm af svokölluðum PM10 efnum í hverjum rúmmetra, en heilsuverndarmörk eru við 50 míkrógrömm. Íbúar borgarinnar fara um 500.000 bílferðir á hverjum degi og af þeim hlýst þessi mikla mengun.

Borgaryfirvöld hvöttu einnig atvinnurekendur að láta starfsmenn sína vinna sveigjanlegan vinnutíma eða vinna heima í þeim tilvikum sem það er hægt. Markmiðið með þessum hvatningum er að auka lífsgæði í borginni, eins og segir í yfirlýsingunni frá borgaryfirvöldum.






×