Bílar

Fríar skráningar á sjalfsalinn.is

Finnur Thorlacius skrifar
Einn af þeim bílum sem til sölu er á sjalfsalinn.is núna.
Einn af þeim bílum sem til sölu er á sjalfsalinn.is núna.
Vefsíðan sjalfsalinn.is er vettvangur þeirra sem kjósa að selja bíla sína beint til annarra kaupenda. Nú eru þar á skrá á sjönda hundrað bílar og fer þeim ört fjölgandi og viðskipti lífleg. Í samtali við Stefán Þór Sigfússon hjá sjalfsalinn.is segir hann;

“Við erum líka byrjaðir með 2 nýjar auglýsingaleiðir ásamt því að hafa eina leið sem kostar ekkert en í þeirri leið er faratækið ekki eins sýnilegt og er farartækið einungis í leitarvél og birtist ekki á forsíðu."

“Nú geta notendur keypt 30 daga auglýsingu inn á vefnum okkar og smáauglýsingu í helgablaði Fréttablaðsins í einum pakka fyrir 4.990.- kr. Helgarblað Fréttablaðsins er prentað í sirka 90.000 eintökum."

“Einnig bjóðum við notendum upp á að auglýsa farartæki á Facebook sem er nýjung og hefur gefist ákvaflega vel. Þar ráða notendur hversu miklu fé þeir eru til í að nota í auglýsinguna, og þá hversu mikla dekkun auglýsingin fær. Auk þess getum við stýrt því hver markhópur auglýsingarinnar er hverju sinni."






×