Íslenski boltinn

Gott að hafa Beck í KR-liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórólfur Beck.
Þórólfur Beck. Myndasafn Fréttablaðsins
KR-ingar urðu þrisvar sinnum Íslandsmeistarar á síðustu fjórum tímabilunum sem Þórólfur Beck kláraði með liðinu á sjöunda áratugnum. Sögufróðir KR-ingar fagna því að félagið hafi endurheimt Beck í liðið sitt fyrir komandi tímabil í Pepsi-deildinni í fótbolta.

Sigurður Helgason þekkir mjög vel til í KR enda hefur hann unnið fyrir félagið í tugi ára og þessi mikli KR-ingur sá strax mjög jákvæða hluti við komu Dananna Morten Beck Andersen og Morten Beck til félagsins. 

„Þetta veit á gott að hafa tvo Beck í liðinu. Síðast þegar Beck spilaði með KR vann liðið Íslandsmótið 1968. Það var Þórólfur Beck sem lék þá með KR eftir að hafa öðlazt á ný áhugamanna réttindi sín eftir glæstan feril sem atvinnumaður í knattspyrnu," skrifaði Sigurður Helgason á fésbókina um leið og hann deildi frétt Vísis frá því í gær.

Þórólfur Beck var lykilmaður í sigri KR á Íslandsmótinu 1968 en KR vann ekki titilinn síðan í 31 ár eftir að hann lagði skóna á hilluna. Þórólfur meiddist illa á ökkla sumarið eftir og lagði svo skóna á hilluna í kjölfarið.

Þórólfur Beck varð alls þrisvar sinnum Íslandsmeistari með KR en hann vann titilinn einnig 1959 og 1961. Hann varð einnig þrisvar markahæsti leikmaður deildarinnar, 1959 (11 mörk), 1960 (15 mörk) og 1961 (16 mörk) áður en hann fór út í atvinnumennskuna og bætti markamet deildarinnar í tvö seinni skiptin.

Markmet Þórólfs frá sumrinu 1961, 16 mörk, stóð í tólf ár eða þangað til að Hermann Gunnarsson bætti það sumarið 1973.

Sumarið 1959 var spiluðu tvöföld umferð í fyrsta sinn og þá vann KR-liðið með Þórólfur Beck í fararbroddi alla tíu leiki tímabilsins. Það KR-liðið er eina liðið í efstu deild sem hefur náð fullu húsi á Íslandsmótinu síðan að liðin fóru að spila heima og að heiman.

Kannski verður of af mikið Beck-áhrifum í KR-liðinu en það mun koma í ljós. Nýju mennirnir ættu að styrkja bæði vörnina og sóknina fyrir Pepsi-deildina í sumar.

Morten Beck er 21 árs og 180 sentímetra hægri bakvörður en Morten Beck Andersen er 28 ára og 190 sentímetra sóknarmaður. Hvernig menn koma til að greina nöfnin í sundur á enn eftir að koma í ljós.

Þetta veit á gott að hafa tvo Beck í liðinu. Síðast þegar Beck spilaði með KR vann liðið Íslandsmótið 1968. Það var Þóró...

Posted by Siggi Helgason on 22. mars 2016

Tengdar fréttir

Annar Dani til KR

Morten Beck Andersen, 28 ára Dani, er genginn til liðs við KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×