Bílar

Porsche hologram þrívíddarauglýsing í tímariti

Finnur Thorlacius skrifar
Þegar fyrirtæki framleiðir heimsins bestu sportbíla vill það að sjálfsögðu láta heimsbyggðina vita af því og fyrir hvað bílar þeirra standa. En þá liggur líka beinast við að búa til heimsins athygliverðustu auglýsingu.

Það hefur Porsche ef til vill tekist með tímaritaauglýsingu um nýjan Porsche 911. Með tímaritinu fylgir nefnilega fjórhliða prisma-laga glært form sem áskrifendur blaðsins geta sett saman með einu handtaki. Það er síðan lagt ofan á lófatölvu og kveikt á kynningarmyndskeiði um 911 bílinn og með því varpast það uppá formið og spilast í þrívídd.

Þetta má sjá í myndskeiðinu hér að ofan. Það var auglýsingastofan Cramer-Krasselt sem bjó til þessa auglýsingu og hennar njóta nú 50.000 áskrifendur aprílútgáfu tímaritsins Fast Company.






×