Bílar

Skoda kaupir í kínverska bílaframleiðandanum SAIC

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda VisionS jeppinn mun fást strax á fyrsta ársfjórðungi næsta árs í Kína.
Skoda VisionS jeppinn mun fást strax á fyrsta ársfjórðungi næsta árs í Kína.
Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda hefur fjárfest í kínverska bílaframleiðandanum SAIC fyrir 2 milljarða evra, eða 282 milljarða króna og ætlar með því að tvöfalda sölu bíla sinna í Kína í lok þessa áratugar.

Volkswagen, sem er móðurfyrirtæki Skoda, á einnig í SAIC og bílar Volkswagen eru framleiddir í verksmiðjum SAIC. Skoda seldi 281.700 bíla í Kína í fyrra og ef áætlanir Skoda ganga eftir í Kína verður salan komin yfir hálfa milljón bíla þarlendis árið 2020. Sala Skoda í Kína nam um fjórðungi í heildarsölu Skoda í heiminum öllum í fyrra.

Skoda ætlar að bæta við þremur nýjum gerðum jeppa og jepplinga í viðbót við það fólksbílaúrval sem Skoda býður nú í Kína. Skoda selur nú aðeins Yeti jepplinginn í Kína. Skoda ætlar meðal annars að hefja sölu VisionS jeppans á fyrsta fjórðungi næsta árs í Kína.

Skoda VisionS jeppinn var kynntur sem hugmyndabíll á bílasýningunni í Genf fyrr í þessum mánuði og hann verður einnig sýndur á komandi bílasýningu í Peking.






×