Bílar

Hraðatakmörkunum aflétt á Nürburgring

Finnur Thorlacius skrifar
Brátt má aka Nürburgring akstursbrautina í Þýskalandi á ótakmörkuðum hraða.
Brátt má aka Nürburgring akstursbrautina í Þýskalandi á ótakmörkuðum hraða.
Hraðatakmarkanir hafa verið á akstursbrautinni Nürburgring frá 28. mars í fyrra, en því verður aflétt þann 2. apríl næstkomandi. Ástæða lokunarinnar var slys sem átti sér stað í mars í fyrra er Nissan GT-R bíll sem ekið var af Jann Mardenborough í þolaksturskeppni tókst á loft og endaði á áhorfendasvæði brautarinnar með hörmulegum afleiðingum.

Nú hafa verið gerðar nauðsynlegar breytingar á brautinn til að tryggja bæði öryggi ökumanna og áhorfenda. Hraðatakmarkanirnar voru á tveimur hættulegum stöðum brautarinnar,  við Schwedenkreuz beygjuna og Döttinger Höhe, sem er beinn kafli.

Með afléttingu hraðatakmarkana munu vafalaust hefjast aftur barátta bílframleiðenda við að setja hraðamet í brautinni í hinum ýmsu flokkum bíla. Margt gerist í þróun bíla á einu ári og vafalaust hugsa margir sér gott til glóðarinnar nú og vænta má frétta af bætingum á næstu mánuðum.






×