Bílar

BL innkallar 124 Subaru bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Subaru Outback.
Subaru Outback.
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 124 Subaru bifreiðum, árgerð 2015, af tegundinni Legacy/Outback.

Ástæða innköllunarinnar er að möguleg bilun er í rafmagnshandbremsu og er hætta á að handbremsan í bílunum festist. Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúum í þjónustuveri BL ehf.

Á miðviku­daginn síðasta þurfti BL ehf. að innkalla 16 Su­baru Leyorg bif­reiðar af ár­gerð 2015 og 2016 vegna mögu­legr­ar bil­un­ar í loft­inn­taki sem gæti or­sakað hæga­gang og kraft­missi.






×