Bílar

Jaguar hættir framleiðslu langbaka

Finnur Thorlacius skrifar
Jaguar XF í langbaksgerð heyrir nú brátt sögunni til.
Jaguar XF í langbaksgerð heyrir nú brátt sögunni til.
Svo virðist sem heimsbyggðin öskri á jepplinga og jeppa um þessar mundir og það er meðal annars á kostnað langbaksgerða bílaframleiðenda, svokallaða station- eða wagon bíla.

Völdum þessa hefur Jaguar nú ákveðið að hætta framleiðslu langbaksgerða sinna. Jaguar ætlar, sem ljóst hefur verið í nokkur tíma, að bjóða jeppann F-Pace og svara með því eftirspurninni eftir dýrum og flottum jeppum og styttast fer í að hann komi á göturnar.

Sala langbaka hefur verið á hröðu undanhaldi víða í heiminum á undanförnum árum, ekki síst í Bandaríkjunum og hafa jeppar og jepplingar leyst þá af hólmi. Þetta á þó ekki við öll lönd og til dæmis í Þýskalandi og Svíþjóð er enn mikil sala í langbökum, enda framleiða þýskir bílaframleiðendur og Volvo mikið af langbökum.

Volvo V90 er nýr bíll frá Volvo og þar í landi seljast langbakar eins og heitar lummur.
Audi A6 Allroad er annað dæmi um langbak sem selst vel.





×