Bílar

Rússneskur auðjöfur kaupir 99% í Nürburgring

Finnur Thorlacius skrifar
Aksturskeppni í gangi á Nürburgring brautinni.
Aksturskeppni í gangi á Nürburgring brautinni.
Síðustu ár hafa verið eigendum þýsku akstursbrautarinnar Nürburgring erfið og hver aðilinn á fætur öðrum hefur reynt að kaupa brautina þekktu fyrir lítið fé, en rekstur hennar hefur verið í járnum í nokkurn tíma. Nú hefur hinsvegar Rússinn Viktor Kharitonin keypt 99% hlutafjár í brautinni.

Allt stefndi fyrir það í að fyrirtækið Capricorn Development frá Düsseldorf keypti brautina, en fyrirtækið stóð ekki við greiðslur. Með Capricorn var Getspeed Performance sem átti að eiga mikinn minnihluta. Það 1% sem eftir stendur verður einmitt í eigu Getspeed Performance.

Kaupverð Kharitonin er sagt vera 10,8 milljarðar króna. Lengi hefur staðið til að fá Formúlu 1 kappakstur aftur á Nürburgring brautina en fjárhagslega veik staða fyrri eigenda hefur komið í veg fyrir það. Það gæti breyst nú og Kharitonin á víst í viðræðum við Bernie Ecclestone um að efna til Formúlu 1 kappaksturs á brautinni á næsta ári.






×