Bílar

Aukning í sölu bíla 49,3% það sem af er ári

Finnur Thorlacius skrifar
Bílaumferð á Laugavegi.
Bílaumferð á Laugavegi.
Sala á nýjum fólksbílum í maí jókst um 29,8% miðað við sama mánuð á síðastliðnu ári. Í mánuðinum voru seldir 3.392 nýir fólksbílar en þeir voru 2.614 í fyrra. Nýskráðir fólksbílar á árinu eru komnir í 9.270 bíla á móti 6.208 miðað við sama tímabil 2015 eða aukning um 3.062 bíla og 49,3% vöxt.

Jákvæð þróun í nýskráningu nýrra bíla heldur áfram það sem af er þessu ári. Með áframhaldandi góðri sölu nýrra bíla ætti meðalaldur bíla hér á landi að færast nær því sem gengur og gerist í þeim löndum sem við gjarnan berum okkur saman við. Enn er nokkuð í land en horfurnar eru góðar.

Um það bil helmingur nýskráðra bíla hér á landi eru bílaleigubílar en ört stækkandi markaður er fyrir bílaleigubíla samfara aukinni ferðamennsku hér á landi.






×