Bílar

Lögreglan í London notar mótorhjól fyrir hryðjuverkadeildir

Finnur Thorlacius skrifar
Gráir fyrir járnum á gráum BMW mótorhjólum.
Gráir fyrir járnum á gráum BMW mótorhjólum.
Meðal þess sem sérstakar baráttudeildir gegn hryðjuverkum hjá lögreglunni í London hafa nýtt sér eru mótorhjól. Þau gera þeim kleift að komast fljótt á áfangastað þrátt fyrir mikla umferð.

Þessi aðgerð lögreglunnar var kynnt í gær ásamt því að fleiri vopnaðir lögreglumenn verða nú sýnilegir í höfuðborg Bretlands eftir nýlegar hryðjuverkaárásir í Evrópu.

Hjólin sem lögreglan hyggst nota eru grámáluð BMW F800GS sem geta verið jafnvíg á malbiki sem utanvegaakstur, og ekið upp eða niður tröppur eða yfir kantsteina. Í samtali við Sky News fréttastofuna sagði yfirmaður í hryðjuverkadeild lögreglunnar að umferð getur verið í hnút á hvaða tíma sem er.

“Þegar hryðjuverkaárás á sér stað má búast við enn meira öngþveiti. Ef að við skoðum Evrópu, París og Belgíu sjáum við að umferð gegnir lykilhlutverki í skjótum viðbrögðum” sagði yfirmaður deildarinnar. “Við látum ökumenn hjólanna æfa sig við torfæruakstur svo að þeir geti komist yfir hindranir og verið fljótir milli staðar A og B.”

Ekki er búið að lýsa yfir neinu viðbúnaðarstigi vegna hugsanlegrar árásar en ljóst er að lögreglan í Bretlandi ætlar sér að vera við öllu búin. Kemur þetta fram á mótorhjólavefnum bifhjol.is.






×