Bílar

Volkswagen kynnir rafmagnsbíl með 600 km drægni í París

Finnur Thorlacius skrifar
Ef til vill verður Volkswagen BUDD-e Concept einn þeirra rafmagnsbíla sem standa mun á pöllunum í París.
Ef til vill verður Volkswagen BUDD-e Concept einn þeirra rafmagnsbíla sem standa mun á pöllunum í París.
Volkswagen mun kynna rafmagnsbíl á bílasýningunni í París sem kemst 600 km á hverri hleðslu. Volkswagen telur að um mikinn tímamótabíl sé að ræða og jafnar honum við tilkomu Bjöllunnar og Golf á sínum tíma.

Vænta má margra rafmagnsbíla frá Volkswagen á næstu árum en eftir dísilvélasvindl Volkswagen síðasta haust var stefnu fyrirtækisins breytt og mikil áhersla mun verða lögð á framleiðslu rafmagnsbíla.

Volkswagen ætlar reyndar að kynna nokkra rafmagnsbíla í París og engan þeirra með minni drægni en 400 km. Það er meiri drægni en nýji Bolt rafmagnsbíllinn frá Chevrolet og talsvert meira en tilvonandi Tesla Model 3 bíll. Volkswagen hefur smíðað nýja gerð undirvagna fyrir rafmagnsbíla sína og munu þeir allir verða byggðir á sama undirvagni.

Hætt er við því að rafmagnsbílar steli senunni á bílasýningunni í París, en þegar eru komnar margar fréttir af kynningu hinna ýmsu bílaframleiðenda á nýjum rafmagnsbílum. 






×