Bílar

422 bílar brunnu á tónlistarhátíð

Finnur Thorlacius skrifar
Gríðarlegur bílabruni varð á bílastæði fyrir gesti tónlistarhátíðarinnar Andancas Festival í Portúgal fyrir um 10 dögum síðan. Svo virðist sem eldur hafi blossað upp í einum bíl á bílastæðinu sem síðan barst til nærliggjandi bíla.

Enginn tónleikagesta meiddist í þessum mikla bruna en alls börðust um 160 slökkviliðsmenn við eldinn og þyrlur voru notaðar við slökkvistarfið. Tónleikahaldi var hætt þegar ljóst var hvað hafði gerst á bílastæðinu, en á hverju ári koma um 40.000 gestir á þessa tónlistarhátíð í Portúgal.

Það tók slökkviliðsmenn aðeins um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins, en eins og á þessum myndum má sjá blasti mikið tjón við eftir hildarleikinn.

Ekki var fagurt um að litast á bílastæðinu eftir brunann.
Þessum bílum verður ekki ekið framar.





×