Bílar

Fyrsti rafmagnsbíll Mercedes Benz frumsýndur

Finnur Thorlacius skrifar
Nýr Mercedes-Benz B-Class Electric Drive rafbíll hefur verið kynntur til leiks en þetta er fyrsti hreini rafbíllinn frá þýska lúxusbílaframleiðandanum sem frumsýndur er hér á landi. Rafbíllinn hefur drægni upp á allt að 230 kílómetra við bestu aðstæður og þar spilar byltingarkenndur Range Plus tæknibúnaður bílsins inn í.

Með því að ýta á takka í mælaborðinu fer Range Plus búnaðurinn í gang og eykur drægni bílsins um allt að 30 km. Mercedes Benz B-Class er aflmikill bíll og snar í snúningum. Rafmótorinn skilar 179 hestöflum og togið er 340 Nm. Hröðunin úr 0-100 km er aðeins 7,9 sekúndur.

Hleðslutími bílsins er 3 klukkustundir í heimahleðslustöð. B-Class rafbíllinn er vel búinn nýjasta aksturs- og öryggisbúnaði frá Mercedes-Benz. Bíllinn hefur síðustu daga verið til sýnis á CHARGE Energy Branding Conference ráðstefnunni í Hörpunni og er það vel við hæfi enda er þessi byltingarkenndi rafbíll frá Mercedes-Benz það sem framtíðin ber í skauti sér.






×