Íslenski boltinn

Pepsi Max mörk kvenna: Þór/KA á ekki að tapa 3-0 þó það vanti leikmenn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sandra Mayor hefur verið ein helsta ógn Þórs/KA fram á við síðustu ár
Sandra Mayor hefur verið ein helsta ógn Þórs/KA fram á við síðustu ár vísir/bára
Þór/KA er í vandræðum í leikmannamálum þessa dagana. Mexíkóarnir tveir Bianca Sierra og Sandra Mayor eru í landsliðsverkefni og Arna Sif Ásgrímsdóttir og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir eru meiddar.

Allar fjórar eru lykilmenn í byrjunarliðinu en voru fjarverandi þegar Þór/KA tapaði fyrir Fylki í Pepsi Max deild kvenna.

Sérfræðingar Pepsi Max marka kvenna á Stöð 2 Sport ræddu vandræði norðankvenna.

„Þetta er áhætta ef þú ert að taka leikmenn sem spila fyrir mexíkóska landsliðið, það eru aðrir landsliðsgluggar,“ sagði Mist Rúnarsdóttir þegar Helena Ólafsdóttir velti fram spurningunni um hvort Þór/KA hefði átt að hleypa þeim mexíkósku í landsliðsverkefnið.

„Ég held það sé ofboðslega erfitt að stoppa leikmanninn þinn í að fara í landsliðsverkefni, landsliðið er það stærsta.“

Ásthildur Helgadóttir tók undir með Mist. „Maður vill spila fyrir landsliðið og gerir hvað sem er til þess að gera það,“ sagði Ásthildur.

Það er óheppilegt fyrir Þór/KA að landsliðsglugginn lendi á sama tíma og tveir lykilmenn eru frá vegna meiðsla, en sérfræðingarnir sögðu að aðrir leikmenn í liðinu ættu að geta stigið upp.

„Það verður að berja saman einhverja trú þarna og mér finnst ekkert óeðlilegt að setja þær kröfur á þær að vinna liðin sem eru í sætunum fyrir neðan þær,“ sagði Mist.

„Þetta er lið sem er búið að vera í toppbaráttu undan farin ár, góð uppbygging og metnaður fyrir norðan, þær eiga ekki að tapa 3-0 fyrir Fylki,“ sagði Ásthildur.

Alla umræðuna má sjá hér að neðan.

Klippa: Pepsi Max mörk kvenna: Erfitt að segja nei við landsliðsverkefnum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×