Körfubolti
193 194 195 196 197 198 199 200 201 … 216 ›
Spurs 2-0 yfir gegn Detroit Manu Ginobili skoraði 27 stig fyrir San Antonio Spurs sem sigruðu meistara Detroit Pistons, 97-76 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Staðan í hálfleik var 58-42 fyrir Spurs sem leiða einvígið nú 2-0 en það lið sem fyrr vinnur 4 leiki hampar titlinum. Tim Duncan var næst stigahæstur Spurs með 18 stig. Sport 13.10.2005 19:21
Spurs unnu fyrsta leikinn San Antonio Spurs sigruðu í nótt Detroit Pistons, 84-69 í fyrsta leik liðanna í úrslitum NBA deildarinnar í körfubolta, en leikið var í San Antonio. Spurs leiða því 1-0 í einvíginu en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður meistari. Annar leikur liðanna fer fram aðfaranótt mánudags nk. og eru viðureignirnar í beinni útsendingu á Sýn. Sport 13.10.2005 19:20
X-ið977 byrjar með íþróttafréttir Í dag miðvikudag byrjar Rokk útvarpsstöðin X-ið 97.7 að nýju á því að útvarpa íþróttafréttum og mun sá hátturinn verða á hverjum virkum degi kl. 11.00. Með þessu gefst útvarpshlustendum kostur á að fá nýjustu fréttirnar úr heimi íþróttanna snemma hvers dags en stöðin mun bjóða upp á ítarlegan sport-fréttapakka hverju sinni. Sport 13.10.2005 19:19
Skiles framlengir ekki við Bulls Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum milli þjálfarans Scott Skiles og forráðamanna Chicago Bulls um framlengingu á samningi hans, sem verður að teljast nokkuð skrítið eftir óvænt gengi Chicago í vetur. Sport 13.10.2005 19:19
Enn ekkert gull í körfuboltanum Íslenska karlalandsliðið endaði í öðru sæti þriðju Smáþjóðaleikana í röð. Kýpur tryggði sér fimmta gullið í röð með því að vinna stærsta sigurinn á Íslandi í sögu leikanna Körfuboltalandsliðin þurftu bæði að sætta sig við silfur á Smáþjóðaleikunum í Andorra og lengist því biðin eftir gullinu um að minnsta kosti tvö ár í viðbót. Sport 13.10.2005 19:18
Með tvöfalt hærri laun en Woudstra Jakob Örn Sigurðarson, sem hefur gert það gott með háskólaliðinu sínu Birmingham Southern undanfarin ár, hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið BayerGiants Leverkusen um að leika með því næsta vetur. Sport 13.10.2005 19:18
Helgi Jónas verður með Körfuknattleiksdeild Grindvíkinga hefur ekki setið auðum höndum í sumarfríinu og nú er að verða komin mynd á hóp liðsins fyrir næsta vetur. Friðrik Ingi Rúnarsson mun stýra liðinu á næstu leiktíð, þeir fengu Pál Kristinsson til liðs við sig frá Njarðvík og hafa nú samið við skyttuna Guðlaug Eyjólfsson um að snúa aftur til liðsins eftir hálfs árs fjarveru. Sport 13.10.2005 19:18
Makedóni semur við Skallagrím Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur samið við 22 ára gamlan makedónskan leikstjórnanda að nafni Dimitar Karadjovski um að leika með liðinu næsta vetur. Karadjoski er í landsliðshóp Makedóníu og er sagður sterkur alhliða leikmaður sem á einnig að geta leikið sem skotbakvörður. Sport 13.10.2005 19:18
Milwaukee fékk fyrsta valréttinn Í vikunni varð ljóst hvaða lið hlytu fyrstu valréttina í nýliðavali NBA sem fram fer í lok næsta mánaðar. Lið Milwaukee Bucks datt heldur betur í lukkupottinn þegar þeir hlutu fyrsta valréttinn, enda voru líkurnar á því að þeir fengju að velja númer eitt ekki nema um 6%. Sport 13.10.2005 19:17
Jakob eftirsóttur í Evrópu Jakob Sigurðsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er eftirsóttur, en hann var á dögunum valinn íþróttamaður ársins í Birmingham Southern College skólanum í Bandaríkjunum. Mörg félagslið í Evrópu hafa sóst eftir því að fá hann í sínar raðir. Lið í Belgíu , Hollandi og Þýskalandi hafa öll spurst fyrir um Jakob, m.a. hollensku meistararnir í Amsterdam og þýska liðið Bayer Leverkusen. Sport 13.10.2005 19:16
Tveir landsliðsmenn í KR Tveir landsliðsmenn í körfubolta skrifuðu undir samning við úrvalsdeildarlið KR í morgun. Fannar Ólafsson, sem lék í Þýskalandi, og Pálmi Freyr Sigurgeirsson, sem lék með Snæfelli, skrifuðu báðir undir tveggja ára samninga við KR. Sport 13.10.2005 19:15
Öruggur sigur á Englendingum Ísland sigraði England örugglega í öðrum vináttulandsleik þjóðanna í körfubolta kvenna á jafn mörgum dögum í gær, 78-59, en leikið var í Kópavogi. Birna Valgarðsdóttir lék sinn 61. landsleik og bætti landsleikjamet Önnu Maríu Sveinsdóttur. Sport 13.10.2005 19:14
Ísland mætir Englendingum Kvennalandslið Íslands og Englands í körfubolta mætast í vináttulandsleik í DHL-höll KR-inga í dag kl. 18. Á morgun leika liðin í Smáranum og í Njarðvík á sunnudaginn. Sport 13.10.2005 19:14
Stelpurnar sigruðu þær ensku Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik sigraði stöllur sínar frá Englandi með átta stiga mun, 71-63, í vináttuleik í kvöld. Helena Sverrisdóttir var lang atkvæðamest í íslenska liðinu og gerði 22 stig. Sport 13.10.2005 19:14
Viðræður í NBA sigldar í strand Viðræður stjórnar NBA-deildarinnar í körfuknattleik og leikmannasamtaka virðast sigldar í strand og svo gæti farið að keppni á næstu leiktíð hefjist ekki á sama tíma. Helsta deilumálið er lengd samningstíma leikmanna. Stjórn NBA-deildarinnar vill stytta hámarkslengd samninga úr 7 árum í 5 en á það vilja leikmannasamtökin ekki fallast. Sport 13.10.2005 19:14
Predrag Bojovic tekur við Haukum Predrag "Kuki" Bojovic hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Hauka í körfubolta og tekur við starfi Reynis Kristjánssonar. Bojovic hefur leikið með Haukum undanfarin fjögur ár og var aðstoðarþjálfari Reynis á nýloknu tímabili. Sport 17.10.2005 23:41
Fannar Ólafsson til liðs við KR Körfuknattleiksdeild KR hefur gert tveggja ára samning við landsliðsmiðherjann Fannar Ólafsson. Fannar er klárlega einn af bestu miðherjum landsins, en undanfarin tvö ár hefur hann leikið á Grikklandi og nú síðast með þýska liðinu Ulm. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Sport 13.10.2005 19:13
Sigurður áfram með Keflavík Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari í körfuknattleik, skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Keflavík í gær, en hann stýrði liðinu til sigurs á Íslandsmótinu í vetur. Sigurður valdi í gær landsliðið sem æfa mun fyrir smáþjóðaleikana í Andorra, en fimm nýliðar eru í hópnum: Derrel Lewis, Grindavík, Egill Jónasson, Njarðvík, Sævar Haraldsson, Haukum, Kristinn Jónasson, Haukum, og Guðmundur Jónsson, Njarðvík. Sport 13.10.2005 19:12
KKÍ harmar mál Ólafs Arons Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands lýsir yfir harmi sínum, eins og það er orðað á heimasíðu félagsins, með að körfuknattleiksmaður hafi fallið á lyfjaprófi. Eins og greint var frá í gær hefur Ólafur Aron Ingvarsson, leikmaður Njarðvíkur, verið dæmdur í tveggja ára keppnisbann eftir að í ljós kom að hann hafi neytt amfetamíns. Sport 13.10.2005 19:11
Nýliðarnir mætast í 1. umferð Nýliðarnir í úrvalsdeildinni í körfubolta, Höttur og Þór Akureyri munu mætast í 1. umferð Íslandsmótsins í haust en KKÍ kynnti leikjaniðurröðun í dag. Íslandsmeistarar Keflavíkur hefja titilvörn sína í Seljaskóla gegn ÍR-ingum. Í 1. deild karla fara nýliðarnir í Hrafnaflóka til Víkur og mæta þar Drangi í 1. umferð í byrjun október. Sport 13.10.2005 19:12
Sigurður Þorvaldsson til Hollands Sigurður Þorvaldssson, landsliðsmaður í körfuknattleik og leikmaður Snæfells, hefur samþykkt tilboð frá hollenska liðinu Woonaris. Sport 13.10.2005 19:11
Hlynur til Hollands Lið Snæfells í Intersportdeildinni í körfuknattleik hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku, því Hlynur Bæringsson er á leið til Hollands að leika með liði þar í landi. Sport 13.10.2005 19:11
Njarðvíkingur í 2 ára keppnisbann Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Aron Ingvarsson, sem spilar í úrvalsdeildinni með Njarðvík, var í dag úrskurðaður í tveggja ára keppnisbann af dómstól Íþróttasambands Íslands. Ólafur féll á lyfjaprófi sem tekið var eftir bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Fjölnis í febrúar sl. en í sýni Ólafs Arons greindist afmetamín. Sport 13.10.2005 19:11
Hlynur og Sigurður til Hollands? Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells og landsliðsmaður í körfuknattleik, á í viðræðum við hollenska liðið Woonaris. Sport 13.10.2005 19:10
Tvö silfur á Norðurlandamótinu Norðurlandamóti unglingalandsliða í körfuknattleik lauk í Solna í Svíþjóð í morgun. 18 ára landslið stúlkna tapaði fyrir Svíum í úrslitaleik, 57-79. Helena Sverrisdóttir var stigahæst, skoraði 20 stig, og Ingibjörg Vilbergsdóttir 16. Íslenska liðið varð því í öðru sæti eins og 16 ára landslið pilta sem beið lægri hlut fyrir Svíum, 60-64. Sport 13.10.2005 19:10
Stúlkurnar leika til úrslita Stúlknalandsliðið í körfuknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, vann öruggan sigur á Norðmönnum á Norðurlandamótinu í morgun. Íslensku stúlkurnar unnu með 80 stigum gegn 57. Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir 14. Stúlkurnar leika til úrslita í fyrramálið við Svía. Sport 13.10.2005 19:10
Unglingalandsliðinu gengur vel Unglingalandsliðið í körfuknattleik pilta, 15 ára og yngri, hefur unnið báða leiki sína á Norðurlandamótinu. Íslendingar unnu Dani með 68 stigum gegn 66 í morgun en í gær unnu þeir Svía með fjögurra stiga mun. Sport 13.10.2005 19:10
Misjafnt gengi á Norðurlandamóti Átján ára landslið karla í körfuknattleik sigraði Svía 79-77 á Norðurlandamótinu sem hófst í Svíþjóð í gær. Það gekk ekki eins vel hjá kvennaliðunum gegn Svíum, en eldra liðið tapaði 60-53 og yngra liðið steinlá 77-38. Sport 13.10.2005 19:10
Fækkun erlendra leikmanna Ársþing Körfuknattleikssambands Íslands fór fram á Ísafirði um helgina þar sem ýmsar breytingar litu dagsins ljós. Sport 13.10.2005 19:08
Pippen veitir skrifleg verðlaun Scottie Pippen, fyrrum leikmaður í NBA-körfuboltanum, valdi á dögunum þá leikmenn sem hann taldi eiga rétt á þeim verðlaunum sem veitt eru á ári hverju NBA-deildinni. Sport 13.10.2005 19:08